ÍÞRG1FR02 - Íþróttagrein, frjálsar íþróttir

frjálsar íþróttir

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Viðfangefni áfangans eru helstu greinar frjálsra íþrótta og er áfanginn að mestu verklegur þar sem áhersla er lögð á frjálsar íþróttir fyrir byrjendur og upp að 16 ára aldri. Í áfanganum verður farið í grunnatriði helstu greina og þau þjálfuð. Efni tengt viðfangsefnum verður sett á kennsluvef og nemendur vinna fjölbreytt verkefni, bæði verkleg og bókleg, ýmist einir eða í hóp undir leiðsögn kennara.

Þekkingarviðmið

  • einföldum þjálfunaraðferðum helstu greina frjálsra íþrótta
  • grunnatriðum helstu greina frjálsra íþrótta
  • reglum helstu greina frjálsra íþrótta

Leikniviðmið

  • iðka frjálsar íþróttir
  • framkvæma upphitun sem hentar mismunandi greinum frjálsra íþrótta
  • framkvæma æfingar til að bæta getu sína í helstu greinum frjálsra íþrótta

Hæfnisviðmið

  • iðka frjálsar íþróttir og keppa ef vill
  • getað tekið þátt í umræðum um helstu greinar frjálsra íþrótta
  • geta horft á keppni í frjálsum íþróttum og áttað sig á framgangi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is