LÝÐH3TÓ05 - Tómstundafræði

Tómstundafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: 10 ein. á 2. þrepi í íþróttafræði eða félagsgreinum
Áfanginn er bóklegur og verklegur. Markmiðið er að gefa nemendum tækifæri til að kynnast þeim möguleikum sem eru í boði innan tómstundastarfsins. Verkleg kennsla fer fram innan félagsmiðstöðvarinnar þar sem nemendur skyggja starfsmenn þar. Nemendur læra einnig fjölbreytta leiki og hópefli sem henta unglingum með það í huga að nemendur geti nýtt sér þann möguleika í kennslu og þjálfun. Í lok áfangans eiga nemendur að vera færir um að skipuleggja, sjá um og stjórna tómstundarstarfi á mismunandi hátt.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi tómstundastarfs fyrir samfélagið
  • fjölbreyttu tómstundastarfi
  • mikilvægi tómstundastarfs til að efla andlegan og félagslegan þroska
  • hinum ýmsu leikjum og mismunandi tegundum hópeflis miðað við að efla tilfinninga- og félagsþroska barna og unglinga

Leikniviðmið

  • afla sér upplýsinga um mismunandi tómstundastarf
  • nýta sér og kynna fyrir öðrum mismunandi tómstundastarf
  • stýra mismunandi hópum í leik og tómstundastarfi
  • undirbúa og útskýra ýmsar útfærslur af leikjum
  • greina vandamál og finna lausnir við ýmsar aðstæður
  • læra að vinna með unglingum í félagsstarfi þeirra

Hæfnisviðmið

  • efla leiðtogahæfni sína og mannleg samskipti
  • skipuleggja tómstundastarf með unglingum
  • beita grundvallaraðferðum í forvörnum og eineltismálum
  • átta sig á mismunandi getu einstaklinga ásamt því að leiðbeina þeim
  • taka að sér ýmis verkefni sem snúa að tómstundastarfi eða félagsstarfi hjá skólum og/eða íþróttafélögum
  • meta eigin frammistöðu og vinnuframlag sem og annarra á gagnrýninn hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is