blak
Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er blak fyrir keppnisfólk. Í áfanganum eru tækniatriði greinarinnar þjálfuð og æfð í gegnum æfingar, leiki og spilþarsem tækniatriðin eru flétt saman. Farið verður í ólíkar stöður á vellinum (leikfræði> uppspilari, miðja, kantur, díó og frelsingi) og þurfa nemendur að þekkja og skilja þessar ólíku stöður. Efni tengt viðfangsefninu verður sett á kennsluvef og nemendur vinna fjölbreytt verkefni, bæði verklega og bóklega, ýmist einir eða í hóp undir leiðsögn kennara. Nemendur þurfa að taka héraðsdómararéttindi í blaki (gert í samstarfi við Blaksamband Íslands).
Þekkingarviðmið
- reglum íþróttarinnarog taka Héraðsdómararéttindi í greininni
- hlutverkum leikmanna og staðsetningum
- tæknilegri útfærslu grunnatriða íþróttarinnarí gegnum samsettar æfingar
Leikniviðmið
- setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiðum tímans
- meta reglur íþróttarinnar við að horfa á kappleiki,dæma hjá samnemendum
- geta spilað ólíkar stöður á vellinum
- útfæra krefjandi samsettar æfingar til að æfa viðfangsefnin
Hæfnisviðmið
- taka héraðsdómararéttindi í íþróttagreininni
- bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriðin eru kennd
- meta eigin leik og annarra og komið með hugmyndir að því hvað má bæta og þá hvernig
- geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is