HÖNN2HF05 - Hönnun og framkvæmd

Hönnun og framkvæmd

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRUM1TR05
Markmið áfangans er að nemandinn kynnist aðferðafræði og hugmyndafræði nýsköpunar og fái tækifæri til vinna með eigin hugarsmíð. Farið er í gegnum ferli hönnunarhugsunar, sem byggir á að vinna á skapandi hátt hugmyndavinnu þar sem skilgreind er þörf, unnið að lausnum og stefnt að afurð. Markmiðið er að nemendur þjálfist í að hugsa um marga þætti samtímis og að vinna að einni heild. Vinnuferlið frá hugmynd til verks verður þjálfað með áherslu á skapandi vinnubrögð í skissum og margs konar hönnun og líkanagerð með ýmsum efnum. Nemandinn kynnir verkefni sín og rökstyður lausnirnar. Einnig verður farið almennt yfir búnað í Fab Lab smiðjunni og möguleika sem felast í notkun hans. Farið er yfir notkun á á teikniforritum og hvernig þau vinna með stafrænum framleiðslutækjum. Markmiðið er að nemendur geti hrint i framkvæmd hugmyndum sínum og búið til frumgerðir.

Þekkingarviðmið

  • hugtakinu nýsköpun
  • mikilvægi hugmyndafræði og hugsunarháttar frumkvöðulsins
  • aðferðafræði hönnunarhugsunar
  • gildi hugmyndavinnu
  • hugmyndafræði Fab Lab
  • helstu teikniforritum
  • kostum og göllum hinna ýmsu efnistegunda
  • getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
  • aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun úrgangs

Leikniviðmið

  • greina hugmyndir sem falla undir nýsköpun
  • hugsa um marga þætti samtímis og að vinna að einni heild
  • vinna í hóp að sameiginlegu markmiði
  • velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til viðfangsefnis
  • kynna hugmynd sína og rökstyðja gildi hennar
  • vinna í teikniforritum og nota þær teikningar sem vinnuteikningar fyrir laserskera, vínylskera, og þrívíddarprentara
  • skipuleggja og framkvæma eigin hugmyndir
  • bera ábyrgð á efnisvali út frá því verkefni sem hann hefur kosið sér
  • velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar

Hæfnisviðmið

  • þróa eigin hugarsmíð með ýmsum aðferðum og leysa þau vandamál sem koma upp í ferlinu
  • skilgreina þörf og vinna að lausn frá hugmynd til afurðar
  • koma hugmynd sinni á framfæri með skissum og líkönum úr mismunandi efnum
  • geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt sé að framleiða hana, teikningar, efnisval og annað sem hefur áhrif sé sett upp á skipulegan og aðgengilegan máta
Nánari upplýsingar á námskrá.is