LÝÐH1HL02 - Lýðheilsa - hugur og líðan

Hugur og líðan

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Áfanginn er grunnáfangi í lykilþáttum hugarfars, líðanar og hegðunar. Þannig er leitast við að bera kennsl á og skoða hverning breyta má hugarfari sem hefur áhrif á líðan, þá hegðun og hugsanir sem viðhalda vanlíðan og hverning hafa má áhrif á uppbyggilegan hátt. Nemandinn er studdur til þess að þreifa sig áfram á eigin forsendum, vinna með öðrum og fjalla um efnið út frá eigin forsendum og ná lengra, byggt á fyrri þekkingu og reynslu. Markmiðið er að tengja námsefni áfangans sem best við raunverulegar aðstæður.

Þekkingarviðmið

  • viðfangsefnum og tengslum hugarfars, líðanar og hegðunar
  • vinnubrögðum í tengslum við hugarfar, líðan og hegðun
  • grunnhugtökum í tengslum hugarfars, líðanar og hegðunar

Leikniviðmið

  • beita algengustu hugtökum um viðfangsefni áfangans á skýran og skilmerkilegan hátt
  • lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
  • tjá kunnáttu sína bæði munnlega og skriflega

Hæfnisviðmið

  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
  • taka þátt í umræðum um viðfangefni og tengsl hugarfars, líðanar og hegðunar og mynda sér skoðanir sem byggjast á gagnrýninni hugsun, virðingu og víðsýni
  • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér þær
  • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi og vinna í samvinnu við aðra
  • beita algengustu hugtökum og tengslum hugarfars, líðanar og hegðunar á skýran og skilmerkilegan hátt
  • hagnýta netið til að afla sér þekkingar um viðfangsefni áfangans
  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um áhrif hugarfars og líðanar á hegðun
  • setja sig í spor annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is