HÖNN1DD02 - Drasl eða djásn

Drasl eða djásn

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Markmið námskeiðsins er að skapa vettvang fyrir hugmyndavinnu og nýsköpun með endurnýtingu gamalla hluta til hönnunar á nýrri vöru. Nemendur viða að sér allskyns gömlum hlutum eða afkasti sem eiga sér hvergi hlutverk lengur. Nemandinn kynnist því hvernig hönnunarforsendur breytast eftir því hvaða efni eru notuð, hvaða framleiðsluaðferð er valin og hvort um er að ræða fjöldaframleidda eða sérsmíðaða afurð. Nemandinn kynnist því hvernig mismunandi efnisval og yfirborðsfrágangur breytir ásýnd og eigindum afurðar.

Þekkingarviðmið

  • endurvinnslu og endurnýtingu
  • fjölbreyttri hugmyndavinnu
  • aðferðarfræði hönnunar
  • ábyrgð og sjálfbærni í hönnun

Leikniviðmið

  • sjá möguleika á endurvinnslu- og endurnýtingarhönnun
  • beita fjölbreyttri hugmyndavinnu svo sem heilaspunafundum og notkun hugkorta sýna sjálfstæð vinnubrögð
  • sjá fyrir sér hugmynd og koma henni á blað

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
  • já möguleika á endurvinnslu og endurnýtingu í kringum sig
  • sýna frumkvæði og frumlega útfærslu í verkefnavinnu
  • geta tjáð sig á skýran og ábyrgan hátt um eigin verk og annarra
  • fylgja eftir hugmynd yfir í hönnun og til framleiðslu
Nánari upplýsingar á námskrá.is