MYNL1FT05 - Fríhendis- og fjarvíddarteikning

Fríhendis- og fjarvíddarteikning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum fer fram kynning á grunnatriðum fríhendis‐ og fjarvíddarteikninga. Áhersla er lögð á almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í gerð tvívíðra og þrívíðra fríhendisteikninga ásamt myndrænni framsetningu viðfangsefna. Þjálfað er mat á hlutföllum og gerð greinargóðra rissmynda og skyggingum. Þjálfaður er formskilningur og greining einfaldra grunnforma, svo sem kassa‐ og kúluforma. Lögð er áhersla á teikningu mynda úr umhverfinu, bæði utan‐ og innanhúss og þannig kenndar grunnforsendur m.a. tveggja punkta fjarvíddarteikninga með skuggamyndunum og speglunum. Áhersla er lögð á að ná góðu valdi á fjarvíddar og fríhendisteikningu.

Þekkingarviðmið

  • eðli, uppbyggingu og samsetningu mismunandi forma
  • notkun fjarvíddarpunkta í teikningum
  • mati á hlutföllum við gerð greinargóðra rissmynda

Leikniviðmið

  • teikna einfaldar skissur út frá mismunandi fyrirmyndum
  • miðla upplýsingum með fríhendis‐ og fjarvíddarteikningum
  • teikna fríhendis- og fjarvíddarteikningar

Hæfnisviðmið

  • vinna viðfangsefni myndrænt með fríhendisteikningu
  • takast á við frekara nám tengt fríhendis‐ og fjarvíddarteikningum
  • meta hvenær þörf er fyrir fjarvíddar- og fríhendisteikningar
  • vinna frekari verk í listum
Nánari upplýsingar á námskrá.is