UMHV2NÁ03 - Umhverfisstjórnun

Umhverfisstjórnun

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Í áfanganum kynnast nemendur verkferlum umhverfisstjórnunar og læra að nýta sér þætti umhverfisstjórnunarkerfis sem verkefnið Skólar á grænni grein byggir á. Nemendur ganga þannig í gegnum sjö skref umhverfisstjórnunar, sem er alþjóðlega viðurkennd aðferð og notuð um allan heim.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum sjálfbærni og umhverfismála
  • helstu hugtökum sjálfbærni og umhverfismála
  • sameiginlegri ábyrgð jarðarbúa á jörðinni og íbúum hennar

Leikniviðmið

  • nemandi verði fær um að taka gagnrýna afstöðu gagnvart umhverfi, samfélagi, menningu og efnahagskerfi
  • vera virkur og ábyrgur borgari í umhverfi sínu
  • styrkja lýðræðisleg vinnubrögð
  • stýra umhverfisúrbótum innan skólans

Hæfnisviðmið

  • hafa forystu og frumkvæði á sviði umhverfismála
  • meta málefni sem tengjast sjálfbærni og umhverfismálum
  • gæta jafnréttis á öllum sviðum og temja sér ríka siðferðisvitund
  • meta upplýsingar um samfélagið, umhverfið og náttúruna
  • taka þátt í umræðum og rökstyðja mál sitt á málefnalegan hátt
  • virða skoðanir annarra og geta leyst verkefni í samvinnu við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is