MOME2MM05 - Matur og menning

Matur og menning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum er áhersla lögð á að fræða nemendur um matarmenningu mismunandi menningarsvæða. Fjallað er um hvaða hefðir eru ríkjandi, hvers vegna og hvað er líkt eða ólíkt milli landa. Nemendur kynna sér rétti frá mismunandi löndum og spreyta sig á að elda þá. Um leið halda nemendur uppi bloggsíðu þar sem þeir birta myndefni, uppskriftir, fjalla um hráefni, uppruna og hvernig til tókst.

Þekkingarviðmið

  • framreiðslu matar
  • hvernig einfaldir réttir eru eldaðir frá grunni
  • sjálfstæðum vinnubrögðum
  • vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum í eldhúsinu

Leikniviðmið

  • lesa uppskriftir, fylgja þeim og fjalla um megininntak þeirra
  • efla skilning sinn á matargerð frá mismunandi heimshornum
  • að upplifa, skynja og smakka það sem hann tekur þátt í að framreiða
  • taka þátt í samræðum um mismunandi matarmenningu, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
  • skilja og beita grunnatriðum í framreiðslu matar
  • skoða ólíka matarmenningu og ræða
  • skoða hráefni sem til er í umhverfinu og elda það á nýstárlegan hátt
  • geta unnið í teymi og skipt verkum með öðrum
  • setja fram hugmyndir sínar um framandi rétti og bregðast við viðmælendum

Hæfnisviðmið

  • tjá skoðanir sínar og tilfinningar um mat og framandi matarmenningu
  • vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk matar
  • fylgjast með öðrum vinna
  • sýna nokkurt sjálfstæði við framreiðslu matar undir leiðsögn kennara
  • tjá sig um eigin framreiðslu matar við aðra viðmælendur með almennri ígrundun og samanburði
  • að halda úti bloggsíðu með íhugun um mat og mismunandi matarmenningu
  • leysa úr viðfangsefnum í samstarfi við aðra
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is