FORR2SF05 - Skapandi forritun

Skapandi forritun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í þessum áfanga er fjallað um vefsíðugerð og vefforritun. Farið verður í nokkur helstu verkfæri til að búa til vefsíður sem og unnin verkefni í vefforritun. Áhersla verður lögð á að kynnast mismunandi verkfærum til að búa til vefsíður, bæði á myndrænan hátt en einnig mismunandi forritunarumhverfi fyrir html kóðun.

Þekkingarviðmið

  • Helstu möguleikum hvað varðar heimasíðugerð án forritunar
  • Hugtökum í vefforritun
  • Vefforritun í mismunandi umhverfi

Leikniviðmið

  • Nota mismunandi umhverfi til að hanna vefsíður
  • Forrita í html
  • Nota helstu hjálparverkfæri í vefforritun
  • Lesa html kóða í vefsíðu

Hæfnisviðmið

  • Búa til html síðu á réttan hátt
  • Forrita viðmót
  • Nýta lágmarksfjölda skipana til að leysa verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is