ENSK2YN05 - Enska, yndislestur

yndislestur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum lesa nemendur enskan bókmenntatexta sér til ánægju og yndisauka. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • Mismunandi tegundum bókmennta
  • Enskum bókmenntum og samfélaginu eins og það birtist í þeim
  • Orðaforða í ræðu og riti sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi

Leikniviðmið

  • Lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta
  • Skilja meginefni óstytts bókmenntatexta
  • Vinna með nýjan orðaforða

Hæfnisviðmið

  • Átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
  • Tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir
  • Nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is