TRÖH3SÞ05 - Tröllin heim

sköpun, þjóðfræði og menning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum “Tröllin heim” er lögð áhersla á samþættingu ólíkra námsgreina eins og íslensku, þjóðfræði og sköpunar. Um er að ræða þverfaglegan áfanga sem ætlað er að efla læsi, gagnrýna og skapandi hugsun sem höfð skal að leiðarljósi í öllu námi. Áfanginn miðar að því að virkja sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á tilraunavinnu þar sem nemendur vinna í og með ólík efni og miðla. Nemendur gera tilraunir með margvíslegan óhefðbundinn efnivið þar sem þeir leitast við að finna óvæntar og skapandi leiðir til úrlausnar. Í áfanganum eiga nemendur að sýna frumkvæði og skapandi nálgun í verkefnum sínum og beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verka sinna.

Þekkingarviðmið

  • Fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í tengslum við umfjöllun um mismunandi viðfangsefni
  • Mismunandi tegundum læsis og mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
  • Mismunandi samfélagslegum og menningarlegum aðstæðum

Leikniviðmið

  • Tjá sig á skýran, gagnrýninn og skapandi hátt um þá þekkingu sem þeir öðlast í áfanganum
  • Sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við útfærslu sjálfstæðs lokaverkefnis
  • Taka ábyrgan þátt í samræðum um samfélagslegar og menningarlegar aðstæður er koma fram í kvikmyndum, myndlist og bókmenntum

Hæfnisviðmið

  • Efla læsi, gagnrýna og skapandi hugsun gegnum bókmenntir, kvikmyndir og aðrar listgreinar
  • Beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og myndefnis
  • Draga ályktanir út frá efninu og setja fram eigin hugmyndir, skriflega og verklega
  • Átta sig á samfélagslegum skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum úr texta og myndefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is