KNAT3KE02 - Knattspyrnuakademía 05

Knattspyrnuakademía 05

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og eru kennslutímarnir að mestu verklegir. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.). Í áfanganum verður farið í a.m.k. eina æfinga- og/eða keppnisferð til Akureyrar. Í áfanganum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi leikfræðileg atriði, þ.e. breidd og dýpt í sóknarleiknum en þéttleiki í varnarleiknum.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
  • reglum knattspyrnunnar
  • hvað hugtökin breidd, dýpt og þéttleiki eru og mikilvægi þeirra í sóknar- og varnarleik í knattspyrnu
  • nýtingu spils í fámennum liðum til að þjálfa breidd og dýpt í sóknarleik og þéttleika í varnarleik
  • færslum leikmanna til að auka og nýta breiddina og dýptina í sóknarleiknum annars vegar og hins vegar ná þéttleika í varnarleiknum

Leikniviðmið

  • framkvæma góða og skipulagði upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni
  • útfæra og framkvæma leikfræðileg atriði með mismunandi erfiðleikastigi æfinga, þ.e. frá einföldum til flókinna æfinga
  • meta knattspyrnureglurnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
  • skilja hugtökin breidd, dýpt og þéttleiki

Hæfnisviðmið

  • bæta sig sem knattspyrnumaður
  • meta og velja réttar æfingar til að þjálfa ákveðin tækni- og leikfræðileg atriði
  • meta og velja spilaform í fámennum liðum til að þjálfa mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði
  • geta útskýrt og leiðbeint hvernig hægt er að ná breidd og dýpt í sóknarleik og þéttleika í varnarleik með færslum á leikmönnum
  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is