Knattspyrnuakademía 06
Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og eru kennslutímarnir að mestu verklegir. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.). Í áfanganum verður farið í a.m.k. eina æfinga- og/eða keppnisferð til Akureyrar. Í áfanganum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi tækni og leikfræðileg atriði, þ.e. einleikur eða samspil í sóknarleiknum og pressa eða völdun í varnarleiknum.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
- reglum knattspyrnunnar
- hvað hugtökin einleikur, samspil, pressa og völdun eru og mikilvægi þeirra í sóknar- og varnarleik í knattspyrnu
- nýtingu spils í fámennum liðum til að þjálfa einleik og samspil í sóknarleik og pressa og völdun í varnarleik
- muninum á annars vegar einleik og samspili í sóknarleik og hins vegar á pressu og völdun í varnarleik
Leikniviðmið
- framkvæma góða og skipulagði upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni
- útfæra og framkvæma leikfræðileg atriði með mismunandi erfiðleikastigi æfinga, þ.e. frá einföldum til flókinna æfinga
- meta knattspyrnureglurnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
- meta hvort einleikur eða samspil í sóknarleik sé rétt í mismunandi aðstæðum í leik, bæði í fámennum sem og fjölmennum liðum
- meta hvort pressa eða völdun í varnarleik sé rétt í mismunandi aðstæðum í leik, bæði í fámennum sem og fjölmennum liðum
Hæfnisviðmið
- bæta sig sem knattspyrnumaður
- meta og velja réttar æfingar til að þjálfa ákveðin tækni- og leikfræðileg atriði
- meta og velja spilaform í fámennum liðum til að þjálfa mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði
- geta útskýrt og leiðbeint um hvort annars vegar einleikur eða samspil og hins vegar pressa eða völdun sé rétt í mismunandi aðstæðum í leik og þá af hverju
- geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is