KNAT3KA02 - Knattspyrnuakademía 03

Knattspyrnuakademía

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og eru kennslutímarnir að mestu verklegir. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.). Í áfanganum verður farið í a.m.k. eina æfinga- og/eða keppnisferð til Akureyrar. Í áfanganum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi leikfræðileg atriði, þ.e. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
  • reglunum knattspyrnunnar
  • því hvað 1. og 2. varnar- og sóknarmaður eru og hvernig þeir annars vegar vinna sína grunnvinnu og hins vegar hvernig þeir vinna saman
  • nýtingu spils í fámennum liðum til að þjálfa tækni- og leikfræðileg atriði, s.s. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður

Leikniviðmið

  • framkvæma góða og skipulagði upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni
  • útfæra og framkvæma leikfræðileg atriði með mismunandi erfiðleikastigi æfinga, þ.e. frá einföldum til flókinna æfinga
  • meta knattspyrnureglurnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
  • meta getu iðkenda til að velja rétt erfiðleikastig æfinga til að þjálfa leikfræðileg atriði knattspyrnunnar, s.s. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður

Hæfnisviðmið

  • bæta sig sem knattspyrnumaður
  • meta og velja réttar æfingar til að þjálfa ákveðin tækni- og leikfræðileg atriði
  • meta og velja spilaform í fámennum liðum til að þjálfa mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði
  • sjá tilganginn með og geta skilið hvernig unnið er með mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði í spili með fámennum liðum
  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is