FRÍÞ3ÞG02 - Frjálsar íþróttir 02

greinar, kraftþjálfun, þolþjálfun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Viðfangsefni áfangans eru kraft -, liðleika- og þolþjálfun með sérstaka áherslu á langhlaup. Nemendur stunda tvær æfingar á viku undir handleiðslu kennara, vinna ýmis bókleg verkefni og kynna sér efni á vefnum samkvæmt fyrirmælum kennara.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
  • hvernig hægt er að bæta liðleika, kraft og þol með skipulögðum æfingum
  • hinni fjölbreyttu hreyfingu sem frjálsar íþróttir bjóða uppá
  • þeim reglum sem gilda í keppni í langhlaupum
  • grunntækniatriðum íþróttagreinarinnar við það að iðka hana

Leikniviðmið

  • skipuleggja og framkvæma góða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu
  • útbúa eigin æfingaáætlun til að bæta kraft og þol út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
  • útfæra og framkvæma tækniatriði langhlaupa
  • framkvæma liðleikaæfingar á réttan og árangursríkan hátt
  • fara eftir gildandi reglum í keppni í langhlaupum
  • ræða um viðfangsefnin á faglegan hátt

Hæfnisviðmið

  • undirbúa og stjórna eigin upphitun
  • útbúa eigin æfingaáætlanir til að bæta þol, liðleika og kraft
  • meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
  • halda sér í góðu líkamlegu formi
  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is