FRÍÞ3ÞK02 - Frjálsar íþróttir 01

kraftþjálfun, Þrekþjálfun, þolþjálfun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Viðfangsefni áfangans eru þrek-, kraft- og þolþjálfun auk þess sem nemendur kynnast nokkrum greinum frjálsra íþrótta. Nemendur stunda tvær æfingar á viku undir handleiðslu kennara, vinna ýmis bókleg verkefni og kynna sér efni á vefnum samkvæmt fyrirmælum kennara.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
  • hvernig hægt er að bæta þrek, kraft og þol með skipulögðum æfingum
  • grunnreglum nokkurra greina frjálsra íþrótta
  • grunntækniatriðum nokkurra frjálsíþróttagreina við það að iðka þær

Leikniviðmið

  • skipuleggja og framkvæma góða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu
  • útbúa eigin æfingaáætlun til að bæta þrek, kraft og þol út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
  • útfæra og framkvæma grunntækniatriði nokkur frjálsíþróttagreina
  • fara eftir settum reglum við útfærslu nokkurra frjálsíþróttagreina
  • ræða um viðfangsefnin á faglegan hátt

Hæfnisviðmið

  • undirbúa og stjórna eigin upphitun
  • útbúa eigin æfingaáætlanir til að bæta þrek, þol og kraft
  • meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
  • halda sér í góðu líkamlegu formi
  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is