AÍÞR2AÍ03 - Afreksíþróttaþjálfun

Afreksíþróttir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: AÍÞR1AÍ03
Nemendur stunda markvisst og skipulega afreksþjálfun í íþrótt sinni 3-4x í viku með sérhæfðum þjálfara eða fagaðila. Nemendur þurfa að skila inn eigin markmiðaáætlun fyrir önnina í upphafi. Þá þurfa nemendur að skila inn æfingadagbók eftir hverja viku. Í þessum áfanga er sérstök áhersla lögð á fjölbreyttar og krefjandi æfingar sem nemendur fá að kynnast og læra.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
  • líkamlegu formi og hvernig það er þjálfað markvisst og skipulega
  • markmiðsáætlun til lengri og skemmri tíma og hversu mikilvægt það er að setja sér mælanleg og raunhæf markmið
  • uppbyggingu þjálfunaráætlunar til lengri og skemmri tíma
  • mikilvægi fjölbreytileika í þjálfuninni, s.s. með endurheimtaræfingum, fyrirbyggjandi æfingum og sérhæfðum líkamlegum æfingum

Leikniviðmið

  • setja upp heilsteypta markmiðaáætlun til lengri tíma
  • meta líkamlegt form sitt með mælingum
  • meta kosti og galla sína sem íþróttamaður í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka
  • útfæra og framkvæma sérhæfðar styrktaræfingar tæknilega séð rétt
  • meta fjölbreytt og öðruvísi hreyfiform við endurheimt og viðhald líkamlegrar getu
  • setja upp þjálfunaráætlun til lengri tíma þar sem unnið er með þau markmið sem nemandi hefur sett sér.

Hæfnisviðmið

  • nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri í íþrótt sinni
  • útbúa sér markmiða- og þjálfunaráætlun til lengri tíma sem tekur til mikilvægustu þátta þjálfunar út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
  • framkvæma æfingaáætlun sem hann sjálfur hefur gert
  • meta sjálfur líkamlegt ástand sitt og þannig haft áhrif á hvaða þjálfun er rétt á hverjum tíma
  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt.
Nánari upplýsingar á námskrá.is