knattspyrna
Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 5 einingar í lýðheilsu á 1. þrepi
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í knattspyrnu. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Þekkingarviðmið
- leikreglum í knattspyrnu
- hvernig á að leiðbeina börnum í knattspyrnu
- kennslu tækniæfinga í knattspyrnu
- skipulagningu knattspyrnuþjálfunar
- fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í knattspyrnu.
Leikniviðmið
- leiðbeina byrjendum í knattspyrnu
- nota knattspyrnu sem skólaíþrótt
- spila knattspyrnu
- leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
Hæfnisviðmið
- skipuleggja íþróttatíma í knattspyrnu
- stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
- ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna.
Nánari upplýsingar á námskrá.is