ÍÞRG3KÖ02 - Körfuknattleikur

körfuknattleikur

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í körfuknattleik. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.

Þekkingarviðmið

  • leikreglum í körfuknattleik
  • hvernig á að leiðbeina börnum í körfuknattleik
  • kennslu tækniæfinga í körfuknattleik
  • skipulagningu körfuknattleiksþjálfunar
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í körfuknattleik.

Leikniviðmið

  • leiðbeina byrjendum í körfuknattleik
  • nota körfuknattleik sem skólaíþrótt
  • spila körfuknattleik
  • leiðbeina og bera ábyrgð á hópi

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja íþróttatíma í körfuknattleik
  • stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
  • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
  • ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna.
Nánari upplýsingar á námskrá.is