Blak og bandý
Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í blaki og bandý. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Þekkingarviðmið
- leikreglum í blaki og bandý
- hvernig á að leiðbeina börnum í blaki og bandý
- kennslu tækniæfinga í blaki og bandý
- skipulagningu blak- og bandýþjálfunar
- fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í blaki og bandý.
Leikniviðmið
- • leiðbeina byrjendum í blaki og bandý
- hvernig á að leiðbeina börnum í blaki og bandý
- nota blak og bandý sem skólaíþróttir
- spila blak og bandý
- leiðbeina og bera ábyrgð á hópi.
Hæfnisviðmið
- skipuleggja íþróttatíma í blaki og bandý
- stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
- ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna.
Nánari upplýsingar á námskrá.is