SAGA2MF05 - Þættir úr mannkynssögu fram að 1800

mannskynssaga til 1800

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að félagsvísindum
Í þessum áfanga eru viðfangsefnin fornöldin og arfur hennar í dag: yfirlit yfir fyrstu samfélög manna, trúarbrögð þeirra og menningu, grísk menning, stjórnarhættir, goðaheimur, heimspeki listir og leiki og Rómaveldi, stjórnarhættir, goðaheimur, lýðveldistíminn og keisaratíminn. Menningarheimur Miðalda: upphaf kristinnar Evrópu, Íslam og múslimar, Ísland á miðöldum og síðmiðaldir: Kreppa og plága Ný Heimsmynd: siðaskiptin í Evrópu og á Íslandi, endurreisnin, landafundir og vísindabylting og Upplýsingin. Lögð er áhersla á að kynna nemendur fyrir sögu sem námsgrein og fræðigrein. Markvisst er unnið að því að kynna fyrir nemendum mismunandi tegundir heimilda og þjálfa þá í að leggja gagnrýnið mat á þær. Lögð er áhersla á að sýna fram á hvernig sagan birtist nemendum í nútímanum og að nemendur vinni verkefni og geti miðlað þekkingu sinni á fjölbreyttan og skapandi hátt.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi skeiðum mannkynssögunnar
  • ýmsum sviðum og hluttakendum sögunnar, menningu og hugarfari, hversdagslífi og stjórmálum, einstaklingi og samfélagi, tækni og vísindum
  • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
  • undirstöðum sagnfræðinnar og mikilvægi heimildanotkunar
  • mismunandi tegundum heimilda.

Leikniviðmið

  • afmarka söguleg málefni, greint meginþætti og álitamál, leitað eftir mismunandi sjónarhornum, lýst málinu og gefið álit sitt
  • leita samhengis og tengsla milli tímabila, svæða og sviða
  • nýta sér mismunandi birtingarform sögunnar; kennslubækur, handbækur, fræðirit, myndefni og internetið
  • meta gildi og áreiðanleika heimilda
  • beita gagnrýninni hugsun.

Hæfnisviðmið

  • sjá sögu Íslands í samhengi við sögu Norðurlanda, Evrópu og heimsins
  • gera sér grein fyrir gildi og afstæði sögulegrar frásagnar og skýringa
  • fá lifandi áhuga á fjölþættri sögu
  • bera saman ólík miðlunarform sögulegs fróðleiks
  • miðla sögulegum fróðleik á skapandi og frumlegan hátt.
Nánari upplýsingar á námskrá.is