Bandý
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Viðfangsefni áfangans er bandý og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er á bandý fyrir byrjendur upp að 16 ára aldri. Í áfanganum verður farið í grunnatriði greinarinnar og nemendur þjálfa ýmis grunntækniatriði s.s. knattrak, sendingar, skot og gabbhreyfingar. Efni tengt viðfangsefninu verður sett á kennsluvef og nemendur vinna fjölbreytt verkefni, bæði verkleg og bókleg, ýmist einir eða í hóp undir leiðsögn kennara.
Þekkingarviðmið
- helstu þjálfunaraðferðum greinarinnar
- grunnatriðum og reglum greinarinnar
- mismunandi hlutverkum leikmanna
Leikniviðmið
- stunda bandý, spila mismunandi stöður og fylgja leikreglunum
- framkvæma upphitun og aðrar æfingar til að bæta getu sína í greininni
Hæfnisviðmið
- spila bandý eftir leikreglum
- geta horft á bandýlei og skilið leikinn
- geta tekið þátt í umræðum um bandý
Nánari upplýsingar á námskrá.is