ÍÞRG1KÖ02 - Körfuknattleikur

körfuknattleikur

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Viðfangsefni áfangans er körfuknattleikur og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er körfuknattleik fyrir byrjendur upp að 16 ára aldri. Í áfanganum verður farið í grunnatriði greinarinnar og nemendur þjálfa ýmis grunntækniatriði s.s. knattrak, sendingar, sniðskot og stökkskot. Efni tengt viðfangsefninu verður sett á kennsluvef og nemendur vinna fjölbreytt verkefni, bæði verkleg og bókleg, ýmist einir eða í hóp undir leiðsögn kennara.

Þekkingarviðmið

  • helstu þjálfunaraðferðum greinarinnar
  • grunnatriðum og reglum greinarinnar
  • mismunandi hlutverkum leikmanna

Leikniviðmið

  • stunda körfuknattleik, spila mismunandi stöður og fylgja leikreglunum
  • framkvæma upphitun og aðrar æfingar til að bæta getu sína í greininni

Hæfnisviðmið

  • spila körfuknattleik eftir leikreglum
  • geta horft á körfuknattleik og skilið leikinn
  • geta tekið þátt í umræðum um körfuknattleik
Nánari upplýsingar á námskrá.is