ÍSLE1DB02 - Greinaskrif og blaðaútgáfa - starfsbraut

Skólablað

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum læra nemendur að taka viðtöl og safna upplýsingum sem þeir setja svo saman í fréttablað/skólablað og gefa út að því loknu. Nemendur semja greinar, taka viðtöl, taka myndir, taka saman upplýsingar og setja fram í grein og setja upp blað. Nemendur vinna ýmist einir eða í hóp.

Þekkingarviðmið

  • viðtalstækni og upplýsingasöfnun
  • úrvinnslu ganga og uppsetningu efnis
  • mikilvægi þess að setja upplýsingar fram á skýran og greinagóðan hátt
  • fjölbreyttum aðferðum til að koma efni frá sér á prenti
  • mismunandi fjölmiðlum

Leikniviðmið

  • taka saman upplýsingar t.d. myndir og texta og koma á greinagott form
  • meta eigin texta og annarra á gagnrýninn hátt
  • vinna að skapandi og fjölbreyttum verkefnum
  • vinna ýmist einn eða í hóp

Hæfnisviðmið

  • vinna úr upplýsingum sem hann safnar og útbúa grein til birtingar
  • safna sama upplýsingum með ólíkum hætti, t.d. með viðtölum
  • setja fram efni á skýran hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is