PRJH2HB02 - Hekl fyrir byrjendur

Hekl fyrir byrjendur

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Nemendur kynnast hekli og helstu heklaðferðum. Nemendur læra meðal annars loftlykkjur, keðjulykkjur, fastalykkjur/pinna, stuðla og tvöfalda stuðla, að hekla fram og tilbaka og í hring. Nemendur vinna prufur með mismunandi heklaðferðum og ömmudúllu. Þeir læra að lesa úr mynstrum og fylgja einföldum hekluppskriftum og svo vinna þeir að verkefni að eigin vali, annaðhvort eftir uppskrift eða eigin hönnun. Meginmarkmið áfangans er að nemendur verði sjálfbjarga að honum loknum og geti heklað áfram sjálfir.

Þekkingarviðmið

  • helstu heklaðferðum og möguleikum þeirra
  • mismunandi heklgarni, áferð og eiginleikum
  • helstu heklverkfærum
  • heklheimi alheimsvefsins
  • möguleikum hekls í hönnun og listum

Leikniviðmið

  • beita mismunandi heklaðferðum
  • fylgja einföldum hekluppskriftum
  • lesa úr mynstrum
  • hekla fram og til baka
  • hekla í hring
  • leita að uppskriftum á netinu

Hæfnisviðmið

  • beita helstu heklaðferðum og sjá möguleikana í þeim
  • finna þær uppskriftir sem hann hefur áhuga á að vinna eftir
  • velja sér garn og heklunálar eftir hentugleika
  • kynna sér verk fagmanna og möguleikum hekls í hönnun og listum
  • hekla sjálfstætt eftir einföldum uppskriftum og mynstrum og sé fær um að halda áfram að bæta við sig kunnáttu að áfanganum loknum
Nánari upplýsingar á námskrá.is