MARK3AM05 - Markaðsfræði

almenn markaðsfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 5 einingar í eigin listgrein á 2. þrepi
Áfanginn miðar af því að nemendur nýti sér markaðsfræði og hugmyndafræði hennar, sem verkfæri til að markaðssetja vörur og þjónustu. Sérstaklega mikilvægi markaðsstarfs í síbreytilegu umhverfi og afstöðu fyrirtækja til ýmissa þátta í rekstri. Nemendur vinna út frá eigin viðskiptahugmynd og tileinka sér gagnrýna og skapandi lausnarhugsun og öðlast með því færni í að miðla eigin hugmyndum og skoðunum. Nemendur tengja saman hugmyndafræði markaðsfræðinnar og aðferðafræði við markaðssetningu eigin hugmyndar eða verkefnis og nýta við sölu, verðlagningu, vöruþróun og kynningu.

Þekkingarviðmið

  • tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar
  • þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélög
  • helstu þáttum almenns markaðsstarfs
  • helstu hugtökum og hugmyndum varðandi vöru og vöruþróun
  • helstu samkeppnisformum og mikilvægustu atriðum samkeppnisgreiningar
  • nýtingu mismunandi greiningartækja og vinnubragða við áætlanagerð
  • gerð markaðs-, viðskipta- og kynningaráætlana
  • nýtingu helstu markaðsmiðla í nær-og fjarsamfélagi
  • mikilvægi á góðri skipulagningu og skrásetningu við framkvæmd verkefna
  • hugmyndum um kaupvenjur á neytendamarkaði og fyrirtækjamarkaði

Leikniviðmið

  • virkja hugmyndaflugið og þróa eigin hugmyndir og verkefni
  • nýta sér hugmyndafræði og aðferðafræði markaðsfræðinnar við markaðssetningu á eign verkum og hugmyndum
  • kynna eigin hugmyndir og verkefni og tjá sig um eigin verk og annarra
  • stunda markvissa skýrslugerð
  • gerð markaðs-, viðskipta- og kynningaráætlana

Hæfnisviðmið

  • gera markaðs-, kynningar- og viðskiptaáætlanir sem hentar viðskiptahugmynd þeirra
  • tileinka sér skapandi lausnahugsun sem hann getur yfirfært og nýtt bæði í leik og starfi
  • öðlast aukna trú á sjálfan sig í skapandi vinnu og þora að stíga út fyrir þægindarammann og vinna með eigin hugmyndir á sjálfstæðan og persónulegan hátt
  • tjá sig og miðla þekkingu, hugmyndum og skoðunum fyrir framan hóp, bregðast við gagnrýni og sýna útsjónarsemi í óvæntum aðstæðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is