Sköpun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 5 einingar í eigin listgrein á 2. þrepi
Áfanginn miðar að því að virkja fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á tilraunavinnu þar sem nemendur vinna í og með ólík efni og miðla. Nemendur gera tilraunir með margvíslegan óhefðbundinn efnivið þar sem þeir leitast við að finna óvæntar og skapandi leiðir til úrlausnar. Í áfanganum eiga nemendur að sýnt frumkvæði og skapandi nálgun í verkefnum sínum og beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verka sinna. Kennslan er einstaklingsbundin og miðar að því að styðja nemendur til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni og þróa úrlausnir við hæfi.
Þekkingarviðmið
- möguleikum lista til verðmætasköpunar
- mismunandi miðlum sem hægt er að nota í listsköpun
- konsept hugsun
- vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum við hæfi
- skapandi hugsun og hugflæði
- hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar
- fjölbreyttum miðlum sem hægt er að nýta við listsköpun
Leikniviðmið
- beita skapandi hugsun
- nýta mismunandi miðla við listsköpun
- tjá sig um eigin sköpun
- nýta sér hugarflæði í hugmyndavinnu
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum
- beita mismunandi miðlunarleiðum í sköpun sinni og rökstyðja val sitt
- að tjá sig um eigin listsköpun og sýna hana
- að meta eigið vinnuframlag
Hæfnisviðmið
- vera skapandi í hugsun
- skapa verk byggt á eigin listrænum styrk
- skilgreina eigin verk
- vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar
- fullvinna hugmyndir
- kynna eigin verk og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um verk annara
- tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar verkum sínum
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is