SPÆN1SO03 - Spænska C

Spænska, orðaforð, ritun, tal

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: 10 einingar í spænsku á 1. þrepi
Í áfanganum er áfram lögð áhersla á að nemendur haldi áfram að tileinka sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur vinna verkefni sem þjálfa lesskilning ásamt samskiptaþáttunum: tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á uppbyggingu orðaforða, ritun stutta og hnitmiðaða texta, og munnlegar æfingar. Í áfanganum er menning spænskumælandi landa fléttuð inn í kennsluna. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri verkefnavinnu þar sem nemendur vinna ýmist einir eða í hópum. Unnið er bæði með raunefni og kennsluefni í mynd, vídeó- og textaformi, svo sem tónlist, samtöl, fræðsluefni, blaðagreinar og auglýsingar. Markmiðið er að auka læsi nemenda á hinum spænskumælandi menningarheimi og gera þeim kleift að nota tungumálið til þess að geta tjáð sig á einfaldan hátt og nýtt sér það til að afla sér upplýsinga og þekkingar. Nemendur taka þátt í því að velja þemu og efnistök í áfanganum.

Þekkingarviðmið

  • menningu þeirra landa þar sem spænska er töluð
  • almennum orðaforða og einföldum setningum
  • mál- og samskiptavenjum
  • grunnatriðum í spænskri málfræði
  • tungumálinu og útbreiðslu þess

Leikniviðmið

  • skilja almennt talað mál þegar talað er skýrt og greinilega
  • nota einfaldan orðaforða til að: tjá sig um og lýsa hefðum, séreinkennum í eigin landi og bera saman við hinn spænskumælandi heimi
  • tjá sig um óskrifaðar reglur í hinum spænskumælandi heimi og bera saman við eigin menningu
  • tala um ferðalög og segja frá ferðamáta og möguleikum sem ungt fólk hefur varðandi ferðalög
  • tala um eigin framtíðarhorfur og framtíðarspá almennt
  • afla sér upplýsinga um og tjá sig um sjálfvalin málefni sem tengjast hinum spænskumælandi heimi
  • tjá sig um líðandi stund
  • nota tungumálið í einföldum samræðum bæði við samnemendur og við spænskumælandi fólk
  • lesa texta um efni sem hann þekkir og tileinka sér ný orð í textanum
  • skrifa stuttan samfelldan texta um efni sem unnið hefur verið með og kynna á fjölbreyttan hátt
  • beita meginreglum í málfræði
  • koma auga á blæbrigði spænskumælandi menningar

Hæfnisviðmið

  • halda samtali gangandi og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • skilja talað mál um kunnuglegt viðfangsefni m.a. af internetinu, úr útvarpi og sjónvarpi
  • leita uppi og afla sér upplýsinga úr stuttum blaða- og tímaritsgreinum og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • skrifa texta bæði frá eigin brjósti og samantektir á tilteknu efni sem hann velur sjálfur
  • geta borið eigin menningu við annarra
  • auka meðvitund um eigin leiðir til að tileinka sér tungumálið
Nánari upplýsingar á námskrá.is