tölfræði, ályktunartölfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: tölfræðiáfangi 2. þrepi
Meðal annars verður farið í líkindareikning, fylgni, ályktunartölfræði, normlega dreifingu, t-dreifingu, úrtaksdreifingu, fylgniútreikninga og aðhvarfsgreiningu. Nemendur læra að draga ályktanir um þýði á grundvelli úrtaka, setja fram tilgátur og prófa þær. Nemendur læra að setja fram gögn með sérhæfðum tölfræðiforritum og útskýra niðurstöðurnar, þeir velja sér rannsóknarefni og nýta allt sem þeir læra í áfanganum til að gera rannsóknarefni sínu skil.
Þekkingarviðmið
- algengustu líkindadreifingum
- fylgnihugtakinu
- ályktunartölfræði
- öryggisbili
- framsetningu tilgáta og prófana á þeim
- öflun tölfræðilegra upplýsinga
- grunnatriðum úrtaksfræða
Leikniviðmið
- nýta einfalda líkindadreifingu við útreikning líkinda
- reikna fylgni á milli tveggja breytna
- túlka fylgnistuðla
- nota hugtökin öryggisbil, öryggismörk og öryggisstig á réttan hátt
- setja fram tilgátur og prófa þær
- framkvæma Z-próf og t-próf
- nýta tölfræðileg forrit við vinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is