ÍÞJÁ3ÍT03 - Íþróttaþjálfun til náms 05

íþróttaþjálfun til náms 05

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Nemendur þurfa að stunda íþrótt sína markvisst og skipulega 3-4 sinnum í viku að staðaldri undir handleiðslu þjálfara eða fagaðila. Nemendur þurfa að skila inn markmiðaáætlun til lengri tíma og fyrir önnina í upphafi. Nemendur þurfa að skila inn æfingadagbók eftir hverja viku. Í þessum áfanga er sérstök áhersla lögð á fótaæfingar (quick feed) og íþróttalífsstíl.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
  • líkamlegu formi og hvernig það er þjálfað markvisst og skipulega
  • markmiðaáætlun og hversu mikilvægt það er að setja sér mælanleg og raunhæf markmið til lengri og skemmri tíma
  • uppbyggingu þjálfunarprógrams
  • fótaæfingum (quick feed), hvernig þær eru framkvæmdar á fjölbreyttan hátt og hvers vegna þær eru mikilvægar í hinum ýmsu íþróttagreinum
  • þeim lífsstíl sem afreksíþróttafólk þarf að tileinka sér

Leikniviðmið

  • setja upp heilsteypta markmiðaáætlun
  • meta líkamlegt form sitt
  • meta kosti og galla sína sem íþróttamaður í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka
  • útfæra og framkvæma sérhæfðar styrktaræfingar
  • meta mismunandi fótaæfingar (quick feed) og velja þær sem henta viðkomandi íþróttanemanda og íþróttagrein
  • meta hvað er rétt og hvað er rangt þegar kemur að lífsstíl afreksíþróttafólks
  • setja upp þjálfunarprógram þar sem unnið er með þau markmið sem nemandi hefur sett sér

Hæfnisviðmið

  • nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri í íþrótt sinni
  • útbúa sér markmiða- og þjálfunaráætlun sem tekur til mikilvægustu þátta þjálfunar sinnar út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
  • framkvæma æfingaprógram sjálfur, sem þjálfari, kennari eða nemandinn sjálfur hefur útbúið
  • nýta sér og framkvæma mismunandi þjálfunaraðferðir með áherslu á fótaæfingar (quick feed)
  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is