íþróttaþjálfun til náms 03
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Nemendur þurfa að stunda íþrótt sína markvisst og skipulega 3-4 sinnum í viku að staðaldri undir handleiðslu þjálfara eða fagaðila. Nemendur þurfa að skila inn markmiðaáætlun til lengri tíma og fyrir önnina í upphafi. Nemendur þurfa að skila inn æfingadagbók eftir hverja viku. Í þessum áfanga er sérstök áhersla lögð á ólympískar lyftingar.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
- líkamlegu formi og hvernig það er þjálfað markvisst og skipulega
- markmiðaáætlun og hversu mikilvægt það er að setja sér mælanleg og raunhæf markmið til lengri og skemmri tíma
- uppbyggingu þjálfunarprógrams
- nýtingu ólympískrar lyftinga sem hluta af styrktarþjálfun íþróttafólks
Leikniviðmið
- setja upp heilsteypta markmiðaáætlun
- meta líkamlegt form sitt
- meta kosti og galla sína sem íþróttamaður í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka
- útfæra ólympískar lyftingaræfingar rétt, s.s. hnébeygju, réttstöðulyftu, power clean og clean and jerk
- meta ólympískar lyftingaæfingar og setja þær inn í þjálfunarprógrammið sitt
- setja upp þjálfunarprógram þar sem unnið er með þau markmið sem nemandi hefur sett sér
Hæfnisviðmið
- nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri í íþrótt sinni
- útbúa sér markmiða- og þjálfunaráætlun sem tekur til mikilvægustu þátta þjálfunar hans út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
- framkvæma æfingaprógram sjálfur, sem þjálfari, kennari eða nemandinn sjálfur hefur útbúið
- nýta sér og framkvæma mismunandi þjálfunaraðferðir með áherslu á ólympískar lyftingaræfingar
- geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is