FRÍÞ3TM02 - Frjálsar íþróttir 03

mót, tækniþjálfun, Þrekþjálfun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Viðfangsefni áfangans eru þrek-, kraft- og tækniþjálfun þar sem sérstök áhersla er lögð á kastgreinar. Farið verður yfir keppnisreglur kastgreina sem og þær reglur sem gilda varðandi mælingar auk þess nemendur sjá um framkvæmd kastmóts.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
  • hvernig hægt er að bæta þrek, kraft og tækni með skipulögðum æfingum
  • grunnreglum helstu kastgreina frjálsra íþrótta
  • grunntækniatriðum í kúluvarpi, kringlu- og spjótkasti við það að iðka þær greinar
  • reglum varðandi mælingar í nokkrum greinum frjálsra íþrótta

Leikniviðmið

  • skipuleggja og framkvæma góða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni í kastgreinum
  • útfæra og framkvæma grunntækniatriði helstu kastgreina
  • útbúa einfalda æfingaáætlun í helstu kastgreinum út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
  • mæla lengdir samkvæmt gildandi reglum í nokkrum kastgreinum
  • fara eftir gildandi reglum í kastgreinum
  • ræða um viðfangsefnin á faglegan hátt

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja og stjórna eigin upphitun
  • meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
  • halda sér í góðu líkamlegu formi
  • starfa við frjálsíþróttamót
  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is