kraftþjálfun, Þrekþjálfun, þolþjálfun
Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Viðfangsefni áfangans eru þrek-, kraft- og þolþjálfun auk þess sem nemendur kynnast nokkrum greinum frjálsra íþrótta. Nemendur stunda tvær æfingar á viku undir handleiðslu kennara, vinna ýmis bókleg verkefni og kynna sér efni á vefnum samkvæmt fyrirmælum kennara.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
- hvernig hægt er að bæta þrek, kraft og þol með skipulögðum æfingum
- grunnreglum nokkurra greina frjálsra íþrótta
- grunntækniatriðum nokkurra frjálsíþróttagreina við það að iðka þær
Leikniviðmið
- skipuleggja og framkvæma góða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu
- útbúa eigin æfingaáætlun til að bæta þrek, kraft og þol út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
- útfæra og framkvæma grunntækniatriði nokkur frjálsíþróttagreina
- fara eftir settum reglum við útfærslu nokkurra frjálsíþróttagreina
- ræða um viðfangsefnin á faglegan hátt
Hæfnisviðmið
- undirbúa og stjórna eigin upphitun
- útbúa eigin æfingaáætlanir til að bæta þrek, þol og kraft
- meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
- halda sér í góðu líkamlegu formi
- geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is