ÍSLE1ÍA05 - Íslenska 1 á starfsbraut

Íslenska 1 á starfsbraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er unnið með ýmsa grunnþætti íslenskunnar, svo sem lestur, lesskilning, ritun og tjáningu. Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna fyrir nemendum þau vinnubrögð sem viðhöfð eru í skólanum en námið fer mikið fram í gegnum tölvur. Unnið er að því að nemendur verði færir í alls kyns textavinnslu á tölvutæku formi og kynnist þeim möguleikum sem tölva og netið bjóða upp á. Nemendur lesa ýmsa texta sem birtast í miðlum á netinu og vinna með þá ásamt því að fá þjálfun í ritun og tjáningu.

Þekkingarviðmið

  • þeim möguleikum sem tölva býður upp á til meðhöndlunar texta
  • mismunandi miðlum á netinu
  • ritun og framsetning texta í tölvutæku formi
  • mikilvægi tjáningar

Leikniviðmið

  • meðferð texta á tölvutæku formi
  • að lesa mismunandi texta á netinu sér til gagns
  • ritun mismunandi texta við sitt hæfi
  • tjáningu

Hæfnisviðmið

  • skila tölvuunnum verkefnum og senda rafrænt til kennara
  • lesa ýmsa texta á netinu s.s. fréttir og fræðigreinar
  • rita einfalda texta, sögur og ljóð
  • tjá eigin skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is