SKYN2SH02 - Almenn skyndihjálp, 1. hjálp og sálrænn stuðningur

1. hjálp og sálrænn stuðningur, Almenn skyndihjálp

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Almenn skyndihjálp er fyrsta aðstoð sem veitt er slösuðu eða bráðveiku fólki. Skyndihjálp kemur ekki í stað viðeigandi læknishjálpar. Hún er aðeins bráðabirgðahjálp sem veitt er þar til viðeigandi læknishjálp fæst, ef hennar er þörf, eða þar til bati án læknishjálpar er tryggður. Áverkar eða sjúkleiki kalla þó ekki alltaf á læknishjálp. Fyrstu hjálp er ætlað að gera meðal annars björgunarsveitafólk fært um að sinna slösuðu fólki til fjalla og fjarri læknishjálp. Meðal umfjöllunarefna eru beinbrot, blæðingar, innvortis áverkar, höfuðáverkar og margt fleira. Sálrænn stuðningur er líkamleg og andleg aðstoð við þá sem orðið hafa fyrir áfalli. Markmiðið er að styðja einstaklinginn til fyrra jafnvægis og sjálfstæðis og fyrirbyggja alvarleg og langvinn sálræn eftirköst hjá viðkomandi.

Þekkingarviðmið

  • skyndihjálp, 1. hjálp og sálrænum stuðningi
  • hvað skiptir mestu máli að gera þegar komið er að slysi
  • forgangsröðun aðgerða á vettvangi
  • mikilvægi sálræns stuðnings

Leikniviðmið

  • meta áverka til að gera sér grein fyrir því hversu mikið einstaklingur er slasaður
  • beita þeim aðferðum sem hann lærði, t.d. endurlífgun
  • forgangsraða aðgerðum á slysstað
  • veita sálrænan stuðning

Hæfnisviðmið

  • beita viðeigandi skyndihjálp eða 1. hjálp
  • meta aðstæður á vettvangi slyss
  • forgangsraða aðgerðum á vettvangi
  • meta áverka einstaklinga
  • veita sálrænan stuðning
  • beita endurlífgun
Nánari upplýsingar á námskrá.is