TÖLL2KV05 - Kvikmyndir og tölvuleikir

Kvikmyndir, tölvuleikir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Farið verður yfir helstu einkenni kvikmynda og tölvuleikja og verða nokkur grunnhugtök úr heimi kvikmynda og tölvuleikja til umræðu. Nemendur fá að kynnast möguleikum sem og takmörkunum kvikmynda og tölvuleikja. Fjallað verður um stjörnur, tæknibrellur, klippitækni, sjónarhorn, gagnvirkni, transmedia, tækniþróun, frásagnaraðferðir og fleira.

Þekkingarviðmið

  • þróun og sögu tölvuleikja og kvikmynda
  • helstu hugtökum úr heimi kvikmynda og tölvuleikja
  • möguleikum og takmörkunum tækninnar
  • því hvernig kvikmyndir og tölvuleikir eru búnir til

Leikniviðmið

  • líta á kvikmyndir og tölvuleiki frá mismunandi sjónarhornum og í víðu samhengi
  • virkja hugmyndaflugið á gagnlegan hátt
  • kynna sitt eigið efni fyrir öðrum
  • beita gagnrýnni hugsun

Hæfnisviðmið

  • búa yfir þekkingu um hvernig tölvuleikir og kvikmyndir virka í grundvallaratriðum
  • tjá gagnrýna hugsun í rituðu og töluðu máli
  • kynna efni fyrir öðrum
  • afla sér upplýsinga á netinu
  • tileinka sér efni/inntak margvíslegra texta og nýta sér á mismunandi hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is