FRÍÞ3TM02 - Frjálsar íþróttir 03

mót, tækniþjálfun, Þrekþjálfun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Viðfangsefni áfangans eru þrek-, kraft-, þol- og tækniþjálfun auk þess sem nemendur kynnast nokkrum greinum frjálsra íþrótta og er sérstök áhersla lögð á kastgreinar. Einnig verður farið í reglur og mælingar og haldið frjálsíþróttamót.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
  • hvernig hægt er að bæta þrek, kraft og þol með skipulögðum æfingum
  • grunnreglum helstu greina frjálsra íþrótta
  • grunntækniatriðum í kúluvarpi, kringlu- og spjótkasti við það að iðka þær greinar
  • reglum varðandi mælingar í nokkrum greinum frjálsra íþrótta

Leikniviðmið

  • framkvæma góða og skipulagða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu
  • útfæra og framkvæma grunntækniatriði nokkur frjálsíþróttagreina
  • mæla tíma og lengdir í nokkrum greinum frjálsra íþrótta

Hæfnisviðmið

  • meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
  • halda sér í góðu líkamlegu formi
  • starfa við frjálsíþróttamót
Nánari upplýsingar á námskrá.is