FRÍÞ3ÞG02 - Frjálsar íþróttir 02

greinar, kraftþjálfun, þolþjálfun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Viðfangsefni áfangans eru kraft- og þolþjálfun auk þess sem nemendur kynnast nokkrum greinum frjálsra íþrótta s.s. kúluvarpi, hástökki, sprett- og langhlaupum. Áhersla er lögð á að kynnast íþróttunum í gegnum leik. Nemendur stunda tvær æfingar á viku undir handleiðslu kennara.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
  • hvernig hægt er að bæta kraft og þol með skipulögðum æfingum
  • hinni fjölbreyttu hreyfingu sem frjálsar íþróttir bjóða uppá
  • grunnreglum nokkurra greina frjálsra íþrótta
  • grunntækniatriðum íþróttagreinanna við það að iðka þær

Leikniviðmið

  • framkvæma góða og skipulagða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu
  • útfæra og framkvæma grunntækniatriði nokkurra frjálsíþróttagreina

Hæfnisviðmið

  • meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
  • halda sér í góðu líkamlegu formi
Nánari upplýsingar á námskrá.is