LJÓS2SP02 - Solar Parcel

Solar Parcel

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Nemendur taka þátt í verkefninu Solar Parcel sem er langtíma verkefni á vegum Listhúss í Fjallabyggð og hægt að lesa um það á vef Listhússins (listhus.com). Verkefnið Solar Parcel er langtímaverkefni og taka nemendur þátt í því að koma því af stað hér á Íslandi, þeir fræðast um heildarverkefnið, samvinnuna milli Íslands og Hong Kong og sýningarnar sem haldnar verða í báðum löndunum. Nemendur læra að búa til "pinhole" myndavélar og velta fyrir sér hvar sé best að setja þær upp og hversu langan tíma þær þurfi að vera uppi við til að fanga góða mynd.

Þekkingarviðmið

  • verkefninu Solar Parcel og hugmyndinni bak við það
  • samvinnu listamanna þvert yfir heiminn
  • 'pinhole' myndavélum og vinnslu myndanna
  • hvernig myndirnar verða til og hversu langan tíma það tekur

Leikniviðmið

  • búa til 'pinhole' myndavélar

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í því að koma verkefninu Solar Parcel af stað með því að búa til 'pinhole' myndavél og koma henni fyrir á góðum stað
Nánari upplýsingar á námskrá.is