LJÓS2SK02 - Sköpunargáfan og hversdagsleikinn

Sköpunargáfan og hversdagsleikinn

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Áfanginn fjallar meðal annars um okkur sjálf, steríótýpur, hversdagsleikann, myndir af fólki, eigin reynsluheim, ímyndunarafl og sköpunarkraftinn. Nemendur fá kynningar frá mismunandi listamönnum sem kynna þeim þá liststefnu sem þeir hafa kosið og hvað í henni felst og vinna stutt verkefni tengd hverri stefnu til að átta sig betur á því hvernig framkvæmd hennar er. Að loknum þessum kynningum þurfa nemendur að velja á milli lokaverkefna eftir því í hvaða stefnu þeir hafa valið. Í lok áfangans halda nemendur kynningu á verkefnum sínum.

Þekkingarviðmið

  • þeim liststefnum sem þeim eru kynntar í fyrirlestrum
  • mismunandi aðferðum við listsköpun sína
  • sannleikanum eða skáldskapnum í listsköpuninni

Leikniviðmið

  • skapa eftir þeim leiðum sem þeim eru gefnar
  • fá hugmyndir og framkvæma þær
  • takast á við verkefni án þess að óttast niðurstöðuna

Hæfnisviðmið

  • skapa eigið verk eftir fyrirmælum og reglum ákveðinnar stefnu
  • meta verk annarra útfrá þeim fyrirmælum sem voru gefin voru
  • kynna lokaverkefnið sitt fyrir öðrum
Nánari upplýsingar á námskrá.is