Leiklist, skreytingar, tónlist
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur undirbúa árshátíð skólans með leik, söng og hljófæraleik ásamt því að skipuleggja salinn og skreyta. Nemendur fá leiðbeiningar í spuna og því hvernig maður kemur fram á sviði, t.d. sem kynnir eða skemmtikraftur. Þeir þjálfast í að skipuleggja viðburði og hugsa fyrir því sem þarf til að skemmtunin gangi snuðrulaust fyrir sig. Nemendur ákveða sætaskipulag og leggja á borð ásamt því að skreyta bæði borð og sal.
Þekkingarviðmið
- undirbúningi árshátíðar
- hvað þarf að fá utanfrá og hvað er hægt að gera á staðnum
- skreytingum og skipulagi borðhalds
- spuna og framkomu á sviði
Leikniviðmið
- halda árshátíð
- framkomu á sviði
- spuna og spaugi
- skipuleggja með tilliti til sætaskipulags og skreytinga
Hæfnisviðmið
- skipuleggja, undirbúa og halda árshátíð skólans fyrir nemendur og starfsfólk í fallega skreyttum sal með kynni og skemmtiatriðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is