SMFÉ1SP02 - Spurningakeppni Neon

Spurningakeppni

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur vinna tillögu að skipulagi spurningakeppninnar og hjálpa til við framkvæmd hennar, stigavörslu og fleira því um líkt. Þeir taka ákvarðanir um hvernig keppnin eigi að vera, hvernig spurningarnar eiga að vera, hvaða flokkar, hversu margar spurningar í hverjum flokki o.s.frv. Búa þarf til spurningabanka í hverjum flokki, í heildina u.þ.b. 500 spurningar.

Þekkingarviðmið

  • framkvæmd og skipulagi spurningakeppni
  • spurningaflokkum sem henta viðeigandi aldurshóp

Leikniviðmið

  • semja spurningar sem tilheyra ákveðnum spurningaflokkum
  • skipuleggja spurningakeppni
  • skipta milli sín hlutverkum í keppninni, t.d. spyrill, stigavarsla, dómari

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja spurningakeppni fyrir félagsmiðstöð
  • ákveða spurningaflokka og semja spurningar
  • hrinda keppninni í framkvæmd, halda utan um frammistöðu keppenda og krýna sigurvegara
Nánari upplýsingar á námskrá.is