Minecraft
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Minecraft er tölvuleikur og sýndarheimur sem gefur sköpunargleðinni og ímyndunaraflinu lausan tauminn. Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu atriði er tengjast leiknum. Nemendur læra að setja svokölluð "mod" inn í leikinn sem gerir þeim kleift að sækja viðbætur í leikinn og laga hann að eigin ímyndunarafli. Þá læra nemendur að setja upp og hýsa sinn eigin vefþjón þar sem þeir geta boðið vinum sínum að spila. Farið er vandlega í netöryggi varðandi aðgangsstýringar vefþjóna, hvernig á að læsa þeim fyrir ókunnugum og spila í öruggu umhverfi.
Námskeiðið er bæði fyrir reynda spilara og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í leiknum. Til þess að taka fullan þátt í námskeiðinu er þó nauðsynlegt að nemendur hafi keypt aðgang að leiknum (https://minecraft.net/) og komi með tölvu sem hentar til að spila leikinn.
Þekkingarviðmið
- leiknum minecraft
- breytingum sem notandi getur gert á leiknum
- viðbótum sem henta hverjum og einum
- hvernig maður setur upp vefþjón til eigin nota
- netöryggi
Leikniviðmið
- laga leikinn að eign ímyndunarafli með viðbótum
- setja upp vefþjón til eigin nota
- setja upp aðgangsstýringar á netþjón
- spila leikinn ásamt vinum
Hæfnisviðmið
- aðlaga leikinn að eigin óskum
- setja upp vefþjón fyrir sjálfan sig og ákveðna vini
- setja upp aðgangstýringar á vefþjóninn
- njóta þess að spila leikinn á öruggum stað með þeim sem maður vill spila við
Nánari upplýsingar á námskrá.is