UPPE2GA02 - Fjölgreindarkenning Gardners

Fjölgreindarkenning Gardners

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Skilgreiningin á greind hefur lengi verið umdeild. Til dæmis er vitað að menn skilgreina greind ólíkt eftir því hvaða eiginleika þeir meta mest í fari annarra. Fjölgreindarkenning Howard Gardners byggir á því að greind mannsins samanstandi af a.m.k. 8 mismunandi en þó jafngildum greindarsviðum. Hver manneskja hefur ekki aðeins eitt þeirra heldur öll, í mismiklum mæli þó. Greindarsviðin sem um ræðir eru: málgreind, rök- og stærðfræðigreind, rýmisgreind, tónlistargreind, líkams- og hreyfigreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingargreind og umhverfisgreind. Nemendur skoða mismunandi greindir og hvaða styrkleika þær fela í sér, þeir skoða sjálfa sig til þess að gera sér grein fyrir því hvaða greindir séu sterkasta hjá þeim og hvar veikleikar þeirra sjálfra liggja og hvernig hægt er að vinna með þá.

Þekkingarviðmið

  • fjölgreindarkenningu Gardners
  • styrkleikum mismunandi greinda

Leikniviðmið

  • tengja sig sjálf við mismunandi greindir
  • greina mismunandi greindir
  • sjá hvaða fög krefjast styrkleika í mismunandi greinum
  • hvernig hægt er að vinna með greindirnar til að tileinka sér hluti

Hæfnisviðmið

  • finna hvar styrkleikar og veikleikar þeirra liggja
  • þjálfa sig í þeim greindum sem eru veikari en hinar hjá þeim
Nánari upplýsingar á námskrá.is