HÖNN1TÖ02 - Skapandi smiðja - Fablab

tölvustudd hönnun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Markmið áfangans er að veita innsýn í tölvustudda hönnun og framleiðslu þannig að nemendur geti gert áþreifanlegar frumgerðir af hugmyndum sínum og lært viðeigandi grunnatriði til þess að framkalla hugmyndir sínar. Unnið verður í Fab Lab (Fabrication Laboratory) sem er stafræn smiðja með tækjum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og láta hugmyndir verða að veruleika. Nemendur hanna hlut með aðstoð Inkscape sem er Vektor teikniforrit sem er opin hugbúnaður og ókeypis. Fab Lab styttir leiðina frá hugmynd til vöru. Tæknin gefur notandanum möguleika á að hanna og prenta/skera út í þrívídd þannig að í verklok er tilbúin frumgerð að hlutnum. Nemendur fá ákveðið þema til þess að vinna útfrá.

Þekkingarviðmið

  • tölvustuddri hönnun og framleiðslu
  • vinnu með Inkscape

Leikniviðmið

  • þróa hugmynd sína
  • vinna með hugmynd í Inkscape
  • framleiða hugmynd sína með aðstoð FabLab

Hæfnisviðmið

  • þróa hugmynd og fullvinna hana í Inkscape
  • framleiða vöru sína í FabLab
Nánari upplýsingar á námskrá.is