SKTL1HB02 - Hljómsveitabúðir

Hljómsveitarbúðir

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Hljómsveitarbúðirnar eru ætlaðar nemendum sem spila á hljóðfæri og hafa áhuga á að syngja. Markmiðið er að æfa soul tónlist og koma svo fram á fyrsta vetrardagsskemmtun. Byrjað verður á að æfa tvö lög með The Commitments - Midnight Hour og Mustang Sally, ásamt fleirum frábærum lögum.

Þekkingarviðmið

  • eðli soul tónlistar
  • takti, tónum og hljómum
  • mismunandi hljóðfærum

Leikniviðmið

  • skipuleggja tónlistaræfingar
  • flytja tónlist
  • skoða og meta eigin frammistöðu og annarra

Hæfnisviðmið

  • greina á milli einstakra hljóðfæra
  • geta tekið þátt í samspili og komið fram opinberlega
Nánari upplýsingar á námskrá.is