TÁKN1TB02 - Táknmál fyrir byrjendur

Táknmál fyrir byrjendur

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur læra að kynna sig, spyrja og svara einföldum spurningum, gefa einföld fyrirmæli og lýsa fötum og athöfnum. Þeir læra nöfn mánaða og vikudaga, stafrófið, tölurnar frá 1 - 100 og táknforða tengdan klukkunni og litunum.. Þeir læra að tala um nánasta umhverfi sitt og eiga að geta stafað stutt nöfn eftir námskeiðið. Í málfræðihluta námskeiðsins læra nemendur persónu- og spurnarfornöfn, staðfestingarsvipbrigði og frásagnarsvipbrigði, hv-spurningar og já/nei- spurningar, staðsetningar og nokkrar áttbeygðar sagnir. Textar um mál og menningu eru lagðir fram í námskeiðinu þar sem fjallað er um heyrnarleysi, samfélag heyrnarlausra og táknmál.

Þekkingarviðmið

  • táknum til að kynna sig og spyrja og svara einföldum spurningum
  • tölunum 1-100 og stafrófinu
  • nöfnum mánaða og vikudaga
  • persónu- og spurnarfornöfnum
  • staðfestingar- og frásagnarsvipbrigðum
  • hv-spurningum
  • já/nei spurningum
  • samfélagi heyrnarlausra
  • tónlist og táknmáli

Leikniviðmið

  • tala um nánasta umhverfi sitt
  • stafa einföld nöfn
  • kynna sig
  • spyrja og svara einföldum spurningum
  • lýsa fötum og athöfnum
  • túlka einfalt lag á táknmáli

Hæfnisviðmið

  • stafa einföld nöfn
  • spyrja og svara einföldum spurningum
  • kynna sig og nánasta umhverfi sitt
  • beita persónu- og spurnarfornöfnum
  • þekkja staðfestingar- og frásagnarsvipbrigði
  • þekkja og beita hv-spurningum
  • túlka einfalt lag á táknmáli
Nánari upplýsingar á námskrá.is