LÝÐH1SI01 - Skíðafjör

Skíði

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn samanstendur af verklegri kennslu, nemendur fara á gönguskíð, svigskíðum, fjallgöngu og annarri útiveru. Í áfanganum er lögð áhersla á fjölbreytta hreyfingu og fræðslu um þætti sem íþróttamenn þurfa að hafa í huga þegar þeir stunda vetraríþróttir. Farið verður á gönguskíði, hugað verður að nauðsynlegum undirbúningi gönguskíðaferða, s.s. næringarþörf og snjóflóðahættu og græjurnar prófaðar í stuttri göngu. Daginn eftir verður farin lengri ferð út í óbyggðir þar sem reynir á kunnáttuna. Farið verður á skíðasvæði þar sem þjálfarateymi sér um að nemendur komist þangað sem þeir vilja í fjallinu, hvort sem markmiðin eru einfaldlega að læra á skíði, undirstöðuatriði eins og að beygja og stoppa, eða að bæta stílinn, læra að kenna á skíði eða að læra carving skíðun.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna
  • næringarþörf í bæði styttri og lengri skíðaferðum
  • hvernig á að meta snjóflóðahættu og forðast hættulegar aðstæður
  • fjölbreyttum möguleikum til að stunda skíðaíþróttir
  • þeim búnaði sem þörf er á við mismunandi aðstæður

Leikniviðmið

  • undirbúa og framkvæma gönguskíðaferðir
  • nesta sig fyrir ferðir
  • greina snjóflóðahættu og forðast að lenda í þeim aðstæðum
  • iðka fjölbreyttar skíðagreinar
  • klæða sig eftir veðri og aðstæðum
  • þekkja takmörk sín í mismunandi veðri

Hæfnisviðmið

  • stunda mismunandi skíðagreinar
  • geta nýtt sér vetraraðstæður til líkamsræktar og heilbrigðra lífshátta
  • gera sér grein fyrir þeim hættum sem stafa að þeim í ferðum og forðast þær
  • nesta sig fyrir ferðir miðað við næringarþörf
  • velja sér búnað við hæfi eftir mismunandi skíðagreinum
Nánari upplýsingar á námskrá.is