LÝÐH2HF02 - Heilsufræði og blandaðar íþróttir

Heilsufræði, blandaðar íþróttir

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Áfanginn samanstendur af verklegri kennslu í fjölbreyttum íþróttagreinum s.s. hópíþróttum í sal, sundi, mma glímu, íshokkíi, krullu, klifri á klifurvegg, golfi og skíðum/bretti. Lögð áhersla á fjölbreytta hreyfingu og fræðslu um þætti sem íþróttamenn þurfa að hafa í huga þegar þeir stunda mismunandi íþróttir.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna
  • mismunandi íþróttgreinum
  • viðeigandi búnaði sem þarf til að stunda þessar íþróttagreinar

Leikniviðmið

  • iðka þær greinar sem kenndar eru
  • klæða sig og útbúa eftir aðstæðum og kröfum mismunandi greina

Hæfnisviðmið

  • stunda nýjar og jafnvel óhefðbundnar íþróttir
  • nýta sér mismunandi aðstæður til líkamsræktar og heilbrigðra lífshátta
  • gera sér grein fyrir mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna
Nánari upplýsingar á námskrá.is